top of page

Sumarlestur

Grunnskóli Snæfellsbæjar í samstarfi við Bókasafn Snæfellsbæjar stóð fyrir sumarlestri í fjórða sinn nú í sumar. Markmiðið með sumarlestri er að hvetja börn til lesturs og að njóta góðra bóka ásamt því að viðhalda færni sína í lestri milli skólaára. Að þessu sinni var sumarlesturinn í formi lestrarpóstkorts fyrir 1. til 4. bekk og 5. til 9. bekk þar sem áhersla var lögð á lestur. Alls voru lesnar 45.621 blaðsíða og hefur þátttaka í sumarlestrinum aukist ár frá ári en 75 póstkortum var skilað inn að þessu sinni og var dregið úr þeim kortum í síðustu viku. Að þessu sinni voru veitt peningaverðlaun, þau sem voru dregin út voru Oliver Mar Jóhannsson í 3. bekk, Ísey Fannarsdóttir í 5. bekk, Stefanía Klara Jóhannsdóttir í 8. bekk og Patrycja Stepinska í 10. bekk.



Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page