top of page
Search

Grunnskóli Snæfellsbæjar vann í samkeppni

  • Writer: hugrune
    hugrune
  • Dec 6, 2024
  • 1 min read

Updated: Jan 30

Skólaþróun, samtök áhugafólks um skólaþróun, efndi á haustmánuðum til samkeppni um áhugavert námsumhverfi þar sem fólk var hvatt til að senda inn myndir, greinagóðar lýsingar og uppdrætti af námsumhverfinu. Myndmennt/myndmenntastofa Grunnskóla Snæfellsbæjar var einn af þeim fimm skólum sem fengu viðurkenningu. Skólaþróun heldur úti veftímaritinu Skólaþræðir en í því eru birtar greinar um þróunar- og umbótastarf í skólum og fréttir af áhugaverðu skólastarfi. Stefnt er að því að vefritið verði vettvangur fyrir skólafólk til að miðla góðum hugmyndum og fyrir gagnrýna umræðu um stefnur og strauma í skólastarfi. Ritinu er ætlað að þjóna öllum skólastigum.




 
 
 

Comments


​Nýjar fréttir
Eldri fréttir

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Ennisbraut 11 | 355 Snæfellsbæ

Sími: 4339900 

gsnb(hja)gsnb.is

Opnunartímar:

Hellissandur kl. 8:00 - 16:00

Ólafsvík kl. 8:00 - 16:00

bottom of page