Alþjóðlegi netöryggisdagurinn
Hér fylgja nokkrir hlekkir sem gott er að kynna sér:
Hér eru leiðbeiningar fyrir foreldra þar sem farið er í netöryggi, persónuvernd, samfélagsmiðla, tölvuleiki, friðhelgisstillingar, skjátíma, algóritma og ýmislegt fleira með umræðupunktum fyrir foreldra.
Miðlalæsi.is - Á vefsíðunni miðlalæsi.is eru sex myndbönd um samfélagsmiðla og líðan barna, fréttir og falsfréttir, áhorf á klám og hatur og einelti á netinu. Þar er einnig að finna kennslustuðningsefni fyrir kennara með hverju myndbandi ásamt ítarefni og verkefnum til að nota í kennslu.
Vefur Netumferðarskólans (www.netumferdarskolinn.is) er kominn í loftið! Þar er að finna upplýsingar um jafnvægi í skjátíma, aldursmerkingar, aldursmat samfélagsmiðla o.fl.
Skjárinn og börnin – Heilsuvera - https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/throskaferlid/uppeldi-barna/skjarinn-og-bornin/
Skjátímaviðmið fyrir börn og ungmenni. Börn í dag alast upp í umhverfi sem er hlaðið tækjum og með stöðugum tækninýjungum. Með skynsamri umgengni við þessi tæki geta þau verið hluti af góðu uppeldi. Fyrstu kynni barna af snjalltækjum ættu alltaf að fara fram undir handleiðslu foreldra, forsjáraðila og/eða annarra fullorðinna.
112.is – Netöryggi - https://www.112.is/netoryggi
Samskipti fara æ oftar fram á netinu. Mikilvægt er að vita hvaða hegðun er í lagi, hvaða hegðun er óviðeigandi og hvað eigi að gera þegar stafrænt ofbeldi á sér stað. Lærðu hvernig þú getur bætt öryggi þitt og þinna á netinu.
![](https://static.wixstatic.com/media/78b0ab_0d97ba9a5a0e463a86d0daef190592a4~mv2.png/v1/fill/w_980,h_1386,al_c,q_90,usm_0.66_1.00_0.01,enc_avif,quality_auto/78b0ab_0d97ba9a5a0e463a86d0daef190592a4~mv2.png)
Comments